ABC-vinnustofur og spunagreind: Nýtt skipulag, ný tækifæri

Authors

  • Harpa Dogg Fridudottir
  • Aleksandra Kojic

Keywords:

Gervigreind, Gervigreind í kennslu, Háskólakennarar, Háskólakennsla, námskeiðsþróun, Kennslutækni

Abstract

Greinin fjallar um þróun og innleiðingu nýrrar útgáfu ABC-vinnustofa á vegum Kennslumiðstöðvar Háskóla íslands þar sem spunagreind (e. generative artificial intelligence) er samþætt í ferlið. ABC-náms­hönnun er samvinnumiðuð og sjónræn aðferð sem styður kennara við að samræma hæfniviðmið, kennsluaðferðir og námsmat á grundvelli sex tegunda náms samkvæmt Dianne Laurillard. Frá árinu 2019 hefur Kennslumiðstöð HÍ boðið upp á ABC-vinnustofur við góðar undirtekti, en árið 2025 hófst markviss þróunarvinna þar sem kannað var hvernig spunagreind gæti styrkt hugmyndavinnu og mögulega betrumbætt skipulag námskeiða. Þróaðar voru sérsniðnar kvaðningar og spjallmenni sem studdu þátttakendur í vinnustofunum og voru prófuð í tilraunahópum. Reynslan sýnir að samþætting spunagreindar getur auðveldað endurhönnun námskeiða og aukið stuðning við kennara, en jafnframt kallar hún á sveigjanlegt skipulag og tillit til ólíks tæknibakgrunns þátttakenda. Niðurstöður benda til nýrra tækifæra til að efla námskeiðshönnun í háskólakennslu með markvissri notkun spunagreindar

Published

2026-03-28

How to Cite

Fridudottir, H. D., & Kojic, A. (2026). ABC-vinnustofur og spunagreind: Nýtt skipulag, ný tækifæri. Tímarit kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, 12(1). Retrieved from https://timarit.hi.is/tk/article/view/316